2023-01-27 18:03:24 CET

2023-01-27 18:03:24 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Reita þann 11. mars 2022 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 763.138.233 hlutir og eru 17,5 milljónir hluta eða 2,29% hlutafjár í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Áætlað er að kaupa allt að 6 milljónir hluta sem jafngildir 0,79% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 550 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst mánudaginn 30. janúar næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. ágúst 2023.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 358.212 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu desember 2022.

Arctica Finance hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á einar@reitir.is.