|
|||
2014-03-21 14:45:00 CET 2014-03-21 14:45:03 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurTraustur rekstur og sterkari fjárhagurReykjavík, 2014-03-21 14:45 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Hagræðing í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur og umfangsmiklar ráðstafanir, sem stjórn fyrirtækisins og eigendur þess (Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð), samþykktu á árinu 2011 hafa skilað mun meiri og skjótari árangri en gert var ráð fyrir þá. Aðgerðaáætlun Orkuveitunnar, Planið svokallaða, er til ársloka 2016 og þegar til ráðstafana var gripið fékk Orkuveitan víkjandi lán hjá eigendum sínum til að koma í veg fyrir sjóðþurrð um mitt ár 2011. Nú þegar gildistími Plansins er hálfnaður sýnir ársreikningur samstæðu Orkuveitunnar, sem stjórn fyrirtækisins samþykkti í dag, að tekist hefur að „ná í hús“ ríflega 42 milljörðum króna af þeim 51 milljarði sem ráðstafanirnar áttu að skila í heild sinni. Árangurinn Plansins í lok árs 2013 er liðlega 5 milljörðum króna umfram áætlun og búið er að ná meira en 80% þeirrar heildarfjárhæðar sem Planinu var upphaflega ætlað að skila. Árangur hagræðingarinnar er viðvarandi og því grundvöllur stöðugt batnandi afkomu fyrirtækisins. Stjórnendur Orkuveitunnar verða greinilega varir við að þessi viðsnúningur fer ekki fram hjá fjármálafyrirtækjum erlendis. Svo var komið árið 2011 að allar dyr að erlendu lánsfé voru fyrirtækinu lokaðar. Nú eru viðhorfin gjörbreytt og dæmi um að fulltrúar erlendra banka óski að fyrra bragði eftir samskiptum við Orkuveituna með möguleg viðskipti í huga. Vaxandi framlegð og stórbætt eiginfjárstaða · Raunkostnaður við rekstur OR hefur lækkað um 2,1 milljarð króna frá 2009 og er í krónum talið nánast sá sami nú og þá. · Hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) árið 2013 nam 17,2 milljörðum króna. · Hagnaður ársins 2013 eftir skatta og fjármagnsliði nam 3,3 milljörðum króna. · Framlegð reksturs OR (EBITDA) nam 26 milljörðum króna en var 25 milljarðar árið 2012. · Nettóskuldir lækkuðu á árinu 2013 um 38,7 milljarða króna. Þær nema nú 186 milljörðum króna en voru 234 milljarðar fyrir fjórum árum. · Eigið fé fyrirtækisins jókst um 34% frá fyrra ári, fór úr 61 milljarði króna í árslok 2012 í 81 milljarð í lok árs 2013. · Eiginfjárhlutfallið hækkaði úr 20,4% í 28,6%. · Orkuveitan greiðir ekki arð vegna ársins enda ekki gert ráð fyrir arðgreiðslum út árið 2016, á meðan Planið er í gildi. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar: Afkoma Orkuveitunnar á síðasta ári var prýðileg og hún þurfti líka að vera það. Háar fjárhæðir voru á gjalddaga og mikilvægt fyrir Orkuveituna að standa við allar skuldbindingar. Það tókst og gott betur. Fjárhagsstaða fyrirtækisins styrkist hratt og með föstum tökum á rekstrinum hefur okkur lánast að bæta afkomuna frá ári til árs. Staðfesta starfsfólks Orkuveitunnar, stjórnar og eigenda við að framfylgja Planinu hefur verið einstök. Nú uppskerum við árangur erfiðisins. Á sama tíma hefur okkur tekist að tryggja hnökralitla þjónustu veitukerfanna. Um áramótin urðu miklar breytingar á skipulagi Orkuveitunnar þegar kvaðir raforkulaga um uppskiptingu sérleyfisþátta og samkeppnisþátta í rekstri orkufyrirtækja komu til framkvæmda. Það er vandaverk að tryggja í sessi þann árangur sem náðst hefur við breyttar aðstæður. Skuldabaggi Orkuveitunnar er áfram þungur en vissulega mun léttari en hann var! Traustur rekstur Orkuveitunnar og fumlaus og góð þjónusta kemur viðskiptavinum Orkuveitunnar best til lengdar. Rekstraryfirlit stjórnenda Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs. Rekstur 2009 2010 2011 2012 2013 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 26.013 27.916 33.626 37.905 39.209 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarkostnaður (13.042) (13.964) (12.391) (12.861) (13.126) -------------------------------------------------------------------------------- EBITDA 12.970 13.951 21.235 25.044 26.084 -------------------------------------------------------------------------------- Afskriftir (7.814) (7.962) (8.881) (10.371) (8.927) -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarhagnaður EBIT 5.157 5.989 12.354 14.673 17.156 -------------------------------------------------------------------------------- Innleystar fjármunat. og (4.873) (3.558) (3.621) (5.993) (4.664) (fjármagnsgj.) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir óinnleysta 284 2.431 8.734 8.680 12.492 fjármagnsliði -------------------------------------------------------------------------------- Óinnleystir fjármagnsliðir (4.198) 14.335 (16.041) (12.511) (1.570) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir tekjuskatt skv. (3.914) 16.766 (7.307) (3.830) 10.922 árshlutar. -------------------------------------------------------------------------------- Tekjuskattur 1.398 (3.037) 6.751 1.535 (7.572) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma tímabilsins (2.516) 13.729 (556) (2.295) 3.350 -------------------------------------------------------------------------------- Nánari upplýsingar: Bjarni Bjarnason Forstjóri Sími: 516 7707 |
|||
|