|
|||
2013-04-11 13:45:00 CEST 2013-04-11 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0715 OG RIKV 13 1015Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0715 og RIKV 13 1015 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 13 0715: Alls bárust 3 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 750 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 750 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,247 (flatir vextir 3,00%). RIKV 13 1015: Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.120 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.920 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,310 (flatir vextir 3,38%). |
|||
|