2012-08-29 15:05:35 CEST

2012-08-29 15:06:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Jeratúns 1. janúar – 30. júní 2012


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta
staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á síðasta reikningsári. 

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2012
var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 29. ágúst 2012. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á fyrri hluta ársins 2012 nam 10.808 þús. kr. og í lok þess var
eigið fé neikvætt um sem nam 18.500 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Ástæða
fyrir þessu tapi má rekja til mikils  fjármagnskostnaðar og of lágrar
húsaleigu. Á hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 27 milljónir kr. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
ábendingu. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána 473
millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega
ábyrgð á greiðslu lánanna. 

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á
Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur
eru 57.491 þús. kr. á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar
með vísitölu neysluverðs. 



Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.