|
|||
2008-05-20 11:00:00 CEST 2008-05-20 11:00:26 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Hf. Eimskipafélag Íslands - FyrirtækjafréttirGylfi Sigfússon tekur við starfi forstjóra EimskipsGylfi Sigfússon hefur verið ráðinn forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands. Gylfi hefur sinnt ýmsum störfum innan Eimskips og tengdra félaga og hefur í 18 ár starfað hjá fyrirtækjum í flutningatengdum rekstri. Stefán Ágúst Magnússon, sem hefur tímabundið gegnt stöðu forstjóra og áður stöðu aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs, mun að eigin ósk láta af störfum hjá félaginu. Stefán mun á næstu tveimur til þremur mánuðum sinna stöðu aðstoðarforstjóra og ljúka ákveðnum verkefnum fyrir félagið. Gylfi útskrifaðist frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1990. Hann var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Tollvörugeymslunnar (TVG) á árunum 1990-1996, var framkvæmdastjóri Ambrosio Shipping í Bandaríkjunum á árunum 1996-2000 og framkvæmdastjóri Eimskips Logistics í Bandaríkjunum á árunum 2000-2006. Undanfarin tvö ár hefur Gylfi verið framkvæmdastjóri Eimskip Americas, sem nær yfir flutningastarfsemi Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Hann hefur jafnframt setið í framkvæmdastjórn frysti- og kæligeymslufyrirtækis Eimskips, Versacold/Atlas, frá árinu 2007. Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eimskips: „Við bjóðum Gylfa velkominn sem nýjan forstjóra Eimskips. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum fyrirtækja í flutningarekstri og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og vexti Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Eimskip hefur vaxið mjög hratt á undanförnum árum og áherslur okkar á komandi misserum verða á að ná vel utan um rekstur samstæðunnar og fylgja eftir markmiðum okkar. Ég vil einnig þakka Stefáni fyrir gott og fórnfúst starf við uppbyggingu Eimskips á undanförnum árum og mikilvægt framlag hans til félagsins.“ Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips: „Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka við stöðu forstjóra Eimskips. Á þeim 18 árum sem ég hef unnið hjá Eimskip og tengdum félögum, tel ég mig hafa fengið góða innsýn inn í starfsemi félagsins og tækifæri þess til áframhaldandi vaxtar. Félagið hefur skapað sér sterka stöðu sem leiðandi alþjóðlegt flutningafélag og sem stærsta frysti- og kæligeymslu fyrirtæki í heimi. Á þeim grunni mun ég byggja og í samvinnu við góðan hóp starfsmanna, verður kappkostað við að efla félagið enn frekar og leita sóknarfæra á mörkuðum okkar um allan heim.“ Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 525 7000 / 8257221 Póstfang: halldor@eimskip.is Um Eimskip Eimskip býður viðskiptavinum heildarlausnir í flutningum, með sérstakri áherslu á hitastýrða flutninga og geymslu. Félagið rekur um 280 starfsstöðvar í um 30 löndum, er með um 40 skip í rekstri og um 2.000 flutningabíla. Eimskip er jafnframt stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki heims, með um 180 geymslur, m.a. í Bandaríkjunum, Kanada og Asíu. Starfsmenn eru um 14.000 talsins. |
|||
|