|
|||
![]() |
|||
2015-03-02 19:55:33 CET 2015-03-02 19:56:36 CET REGULATED INFORMATION Íslandssjóðir hf. - ÁrsreikningurÍslandssjóðir hf. – Ársuppgjör 2014Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2014. Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2014. Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2014 -- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikninga verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. -- Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2014 nam 228 m.kr. samanborið við 299 m.kr. árið 2013. -- Hreinar rekstrartekjur námu 1.408 m.kr. samanborið við 1.354 m.kr. árið áður. -- Rekstrargjöld námu 1.123 m.kr. samanborið við 980 m.kr. árið áður. -- Heildareignir félagsins námu 2.600 m.kr. í árslok 2014 en voru 2.595 m.kr. í ársbyrjun. -- Eigið fé í árslok 2014 nam 2.035 m.kr. en var 2.031 m.kr. í ársbyrjun. -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 58% í árslok 2014 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%. -- Í lok desember 2014 voru 18 sjóðir í rekstri og slitum hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 114.130 milljónum króna. Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 3.320 m.kr. árið 2014 samanborið við hagnað uppá 6.551 m.kr. árið 2013. -- Stofnaðir voru tveir nýir fjárfestingarsjóðir á árinu; Lausafjársafn sem hóf rekstur í september og Óverðtryggður sjóður ÍS sem hóf rekstur í október. -- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2014. -- Í lok desember 2014 störfuðu 13 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson. Lykiltölur í m.kr. 2014 2013 ------------------------------------ Hreinar rekstrartekjur 1.408 1.354 ------------------------------------ Rekstrargjöld 1.123 980 ------------------------------------ Hagnaður fyrir skatta 285 374 ------------------------------------ Hagnaður eftir skatta 228 299 ------------------------------------ Eigið fé 31.12. 2.035 2.031 ------------------------------------ Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða árið 2014 -- Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2014 nam 2.329 m.kr., samanborið við 3.779 m.kr. árið 2013. -- Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða í árslok 2014 nam 88.190 m.kr. samanborið við 99.018 m.kr. árið 2013. Lykiltölur í m.kr. Veltusaf Ríkissaf Ríkisskuldabréf - Löng ríkissk.br. - n n Sjóður 5 Sjóður 7 -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 199 736 484 166 ársins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í 3.299 16.869 27.909 34.396 árslok -------------------------------------------------------------------------------- Úrvalsvísitala Heimssafn - Eignasa Eignasafn - Ríki -Sjóður 6 Sjóður 12 fn og sjóðir -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 18 110 33 11 ársins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í 432 1.060 1.076 671 árslok -------------------------------------------------------------------------------- Sjóður Sjóður Sjóður Sjóður Samtals 1A 1B 11A 11B verðbréfasjóðir -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 206 320 16 30 2.329 ársins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í 838 1.299 119 222 88.190 árslok -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða árið 2014 -- Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2014 nam 991 m.kr. samanborið við 2.772 m.kr. árið 2013. -- Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða í árslok 2014 nam 25.940 m.kr. samanborið við 18.707 m.kr. árið 2013. Lykiltölur í m.kr. Lausafjár Skuldabréf Óverðtryggður Fókus - IS safn asafn sjóður ÍS Vextir Hlutabréfa-sj óðurinn -------------------------------------------------------------------------------- Hagnaður (tap) 42 105 51 121 670 ársins -------------------------------------------------------------------------------- Hrein eign í 4.613 4.299 2.646 4.071 10.307 árslok -------------------------------------------------------------------------------- Fyrirtækja-sjóðurinn Samtals fjárfestingarsjóðir ------------------------------------------------------------------------ Hagnaður (tap) ársins 2 991 ------------------------------------------------------------------------ Hrein eign í árslok 4 25.940 ------------------------------------------------------------------------ Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi 2 og hjá VÍB, Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, einnig á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is frá og með 9. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440 4593. |
|||
|