2016-08-26 13:45:15 CEST

2016-08-26 13:45:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2016


Hagnaður af starfsemi RARIK var 882 milljónir á fyrri helmingi ársins.

Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta
ársins 2016 var 1.642 milljónir króna. Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11,5% frá
fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um 7,2%. Hækkun rekstrartekna er
meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum, en rekstrargjöld voru í samræmi við
áætlanir. 

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 446 milljónir króna á tímabilinu, samanborið
við 548 milljónir króna fyrri hluta ársins 2015. Er það mun betri niðurstaða en
gert var ráð fyrir í áætlunum. Stafar það bæði af minni verðbólgu en búist var
við og einnig af styrkingu krónunnar. 

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets á rekstur voru neikvæð um 75 milljónir
króna, samanborið við jákvæð áhrif um 354 milljónir króna á fyrri hluta síðasta
árs. 

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á tímabilinu 882 milljónir króna. Aðrar
tekjur og gjöld færð á eigið fé voru neikvæð um 493 milljónir króna og stafa af
þýðingarmun hlutdeildarfélags en hlutdeildarfélagið Landsnet hefur tekið upp
bandarískan dollar sem starfrækslugjaldmiðil. Heildarafkoma tímabilsins var því
388 milljónir króna. 

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.500
milljón króna eða tæp 34% af veltu tímabilsins, samanborið við rúm 31% af veltu
á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá rekstri var 2.389 milljónir
króna samanborið við 1.830 milljónir króna á sama tímabili árið 2015. 

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2016 voru 60.946
milljónir króna og heildarskuldir námu 25.285 milljónum króna. Eigið fé var
35.661 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 58,5%. 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2016 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma
fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Miðað
við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða verður
heildarafkoma fyrirtækisins því jákvæð á árinu 2016. 

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum. 

Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi.



Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna:



                          jan-jú  jan-jú  jan-jú  jan-jú  jan-jú  jan-jú  jan-jú
                               n       n       n       n       n       n       n
Helstu stærðir              2016    2015    2014    2013    2012    2011    2010
 árshlutareiknings úr                                                           
 rekstri:                                                                       
                                                                                
Rekstartekjur              7.399   6.633   6.428   5.783   5.568   4.979   4.669
Rekstrargjöld              5.757   5.370   4.770   4.576   4.193   4.074   3.885
Rekstrarhagnaður           1.642   1.263   1.658   1.207   1.375     905     785
Fjármunatekjur og           -446    -548    -424    -425    -699    -981     248
 (fjármagnsgjöld)                                                               
Áhrif hlutdeildarfélags      -75     354     277     335      53     -30     233
Hagnaður/tap  fyrir        1.121   1.070   1.512   1.117     729    -106   1.266
 skatta                                                                         
Tekjuskattur                -239    -143    -247    -156    -163      15    -186
Hagnaður (Tap)               882     927   1.265     961     566     -91   1.080
                                                                                
Eignir samtals            60.946  48.838  46.964  45.846  37.163  36.604  35.736
Eigið fé                  35.661  30.112  28.098  26.158  19.894  18.223  17.062
Skuldir                   25.285  18.727  18.866  19.688  17.269  18.381  18.674
                                                                                
Handbært fé frá rekstri    1.744   1.362   1.341   1.214   1.344     617     275
Greidd vaxtagjöld            315     352     357     361     350     337     564
                                                                                
EBITDA                     2.500   2.071   2.455   2.006   1.995   1.532   1.356
Vaxtaþekja                  7,94    5,88    6,88    5,56    5,70    4,55    2,40
Eiginfjárhlutfall          58,5%   61,7%   59,8%   57,1%   53,5%   49,8%   47,7%
                                                                                
                                                                                
                                                                                
Hækkun rekstrartekna      11,55%   3,19%  11,15%   3,86%  11,82%   6,65%  12,48%
Hækkun rekstrargjalda      7,21%  12,58%   4,24%   9,13%   2,91%   4,89%  10,54%
EBITDA/rekstrartekjur     33,79%  31,22%  38,19%  34,69%  35,83%  30,76%  29,03%







Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2016 var samþykktur á fundi
stjórnar þann 26. ágúst 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000