|
|||
2009-03-23 16:26:22 CET 2009-03-23 16:27:22 CET REGULATED INFORMATION Icebank - FyrirtækjafréttirSparisjóðabanka Íslands hf. veitt heimild til greiðslustöðvunarSparisjóðabanki Íslands hf. hefur verið veitt heimild til greiðslustöðvunar í 12 vikur samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp fyrr í dag. Var beiðni um greiðslustöðvun lögð fram af stjórn Sparisjóðabankans í kjölfar ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins frá 21. mars sl. þar sem FME lagði fyrir stjórn bankans að leita heimildar til greiðslustöðvunar fyrir bankann. Þá hefur stjórn bankans ráðið Tómas Jónsson, hrl., til að gegna starfi aðstoðarmanns bankans meðan á greiðslustöðvun stendur. Með heimild til greiðslustöðvunar fær stjórn og stjórnendur bankans svigrúm til að leita áfram lausna á fjárhagslegri endurskipulagningu bankans. |
|||
|