|
|||
2009-05-08 11:29:07 CEST 2009-05-08 11:30:17 CEST REGULATED INFORMATION Snæfellsbær - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Fimmtudaginn 7. maí 2009 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2008 tekinn til fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Síðari umræða um ársreikningurinn verður miðvikudaginn 20. maí n.k. Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum. Ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2008 byggir á sömu reikningsskila¬aðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.515,5 millj. króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.364,2 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um 1.209,6 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.099,9 millj. króna. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð um 89,9 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir tapi upp á 15,3 millj. króna. Afkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 105,2 millj. króna. Rekstrarniðurstaða A-hluta var rekstrarafgangur að fjárhæð 121,6 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrarafgangi upp á um 5,5 millj. króna. Afkoman varð því betri sem nemur 116,1 millj. króna. Ástæða þessa er að mestu leyti hærri skatttekjur, en á árinu 2008 voru þær samtals 82 milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Veltufé frá rekstri var 399,6 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,69. Handbært frá rekstri var 425,8 milljónir. Heildareignir bæjarsjóðs námu um 1.978,2 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 2.533,8 millj. króna í árslok 2008. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.348,2 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 1.777,8 millj. króna. Fjárfestingarhreyfingar voru 281,6 milljónir og fjármögnunarhreyfingar 194,3 milljónir. Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 297 milljónir í varanlegum rekstrarfjármunum og tók engin ný lán en greiddi niður lán að fjárhæð 194 milljónir. Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam 0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Snæfellsási 2, Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is. |
|||
|