2009-02-05 06:30:00 CET

2009-02-05 06:31:33 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur hf. - Uppgjör fyrir árið 2008



Helstu niðurstöður fyrir 2008

  * Sala var 350,0 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 4%.
  * EBITDA var 79,4 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 23%.
  * EBITDA hlutfall var 23%, samanborið við 19% fyrir sama tímabil í
    fyrra.
  * Hagnaður tímabilsins var 28,5 milljónir Bandaríkjadala,
    samanborið við 7,6 milljónir á sama tímabili árið 2007.
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 6,73 bandarísk
    sent, samanborið við 1,94 sent á sama tímabili í fyrra.
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
    tilliti til kauprétta var 12,3 bandarísk sent, samanborið við
    8,24 sent á sama tímabili árið 2007.


Jón Sigurðsson, forstjóri:"Árið einkenndist af áherslum á innviði fyrirtækisins. Eitt af helstu
verkefnum ársins var að auka arðsemi og á sama tíma og við höfum  séð
minni sölu en gert  var ráð fyrir, jókst  arðsemin töluvert. Á  árinu
voru þrettán nýjar  vörur kynntar  á markaðnum og  tuttugu teknar  af
markaði. Á árinu 2009  eru væntanlegar nýjar  og spennandi vörur,  en
aðal áherslan mun  vera á  hefðbundnar vörur sem  falla að  núverandi
endurgreiðslukerfum. Fjármálakreppan sem  nú ríkir  í heiminum  hefur
haft takmörkuð áhrif á starfsemi  félagsins, en það á einnig  almennt
við um heilbrigðisgeirann. Þegar  á heildina er  litið teljum við  að
okkur hafi tekist að byggja upp  sterkt fyrirtæki og að leggja  góðan
grunn að áframhaldandi velgengni."


The press release including tables, the Investor Presentation Q4 2008
and the  Financial  Statement Q4  2008  can be  downloaded  from  the
following links: