2015-11-06 16:25:54 CET

2015-11-06 16:26:56 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Tillaga að skilyrðum arðgreiðslna til eigenda OR


Reykjavík, 2015-11-06 16:25 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt tillögu að arðgreiðsluskilyrðum fyrir
fyrirtækið. Tillagan er nú til meðferðar hjá eigendum fyrirtækisins;
Reykjavíkurborg, Akraneskaupstað og Borgarbyggð. 

Tillagan er gerð í samræmi við ákvæði í eigendastefnu OR sem gerir ráð fyrir að
stjórn samþykki arðsstefnu fyrir fyrirtækið, sem hljóta skuli staðfestingu
eigenda. Í tillögunni eru fjárhagslegir mælikvarðar, sem uppfylltir skulu, áður
en til arðgreiðslu kemur frá fyrirtækinu og arðgreiðslur megi ekki brjóta gegn. 

Skilyrðin eru þessi:

Skilyrði                 2016-2018  2019-
-----------------------------------------
1.Veltufjárhlutfall         >1,0     >1,0
2. Eiginfjárhlutfall        >35%     >40%
3. FFO vaxtaþekja           >3,5     >3,5
4. RCF / nettó skuldir      >11%     >13%
5. FFO / nettó skuldir      >13%     >17%
6.  Arðgreiðsluhlutfall     ≤50%     ≤50%
-----------------------------------------

Samkvæmt Planinu, aðgerðaáætlun sem OR hefur unnið eftir frá árinu 2011, er
ekki greiddur arður á gildistíma þess. Planið er í gildi til ársloka 2016. 


         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 7707