|
|||
2011-10-26 18:03:15 CEST 2011-10-26 18:04:16 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirOrkuveita Reykjavíkur semur um fjármögnun og áhættuvarnirReykjavík, 2011-10-26 18:03 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) samþykkti á fundi sínum 21. október 2011 lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga til að fjármagna yfirstandandi fráveituframkvæmdir á Akranesi, í Borgarbyggð og á Kjalarnesi. Um tvo lánasamninga er að ræða; 1,6 milljarða króna í íslenskum krónum og allt að 10 milljónir evra, sem svara til svipaðrar fjárhæðar í íslenskum krónum talið. Lánstími er 10-25 ár með möguleikum á breytingum til lengingar eða styttingar lánstíma. Hluti lánanna er vegna þegar áfallins kostnaðar við fráveituframkvæmdirnar. Hann nemur nú alls 4,3 milljörðum króna og hefur verið fjármagnaður með óhagkvæmari hætti en þau kjör sem nú er samið um. Samþykkt stjórnar OR var gerð með fyrirvara um staðfestingu eigenda. Á sama fundi stjórnar var samþykktur samningur við hollenska ING bankann um áhættuvarnir gagnvart þróun álverðs og vaxta. Markmið samningsins er að draga úr áhættu OR af hugsanlegri óhagstæðri þróun þessara þátta, sem geta haft veruleg áhrif á fjárhag OR. Með samningnum dregur OR þannig úr þörf fyrir lausafé til að geta mætt óhagstæðum sveiflum. OR telur að þessir samningar séu til marks um að fjármálastofnanir innanlands og utan hafi trú á þeirri aðgerðaáætlun, sem OR vinnur nú eftir, og getu fyrirtækisins til að standa við hana. Samningarnir hafa ekki bein áhrif á aðgerðaáætlun OR og eigenda frá vorinu 2011 en styrkir framgang hennar. |
|||
|