2013-01-18 19:38:25 CET

2013-01-18 19:38:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Ríkisútvarpið velur tilboð Fjarskipta í stafræna sjónvarpsdreifingu


Ríkiskaup hafa tilkynnt, fyrir hönd Ríkisútvarpsins ohf., að valið hafi verið
tilboð Vodafone (Fjarskipta hf.) í stafræna sjónvarpsdreifingu fyrir
Ríkisútvarpið. Nánari upplýsingar um framhald samningagerðar má lesa í
kauphallartilkynningu Ríkisútvarpsins.

Stafræn sjónvarpsdreifing fyrir Ríkisútvarpið var boðin út á evrópska
efnahagssvæðinu á síðasta ári. Útboðið var í nokkrum áföngum; fyrst forvali þar
sem allir áhugasamir aðilar gátu sent inn tilboð, næst bauðst fjórum aðilum að
taka áfram þátt í útboðinu og að lokum stóð valið milli tveggja fyrirtækja.
Vodafone var annað þeirra og hefur nú verið tilkynnt að tilboð félagsins hafi
verið valið.

Fjarskipti munu gefa út frekari upplýsingar eftir því sem samningagerðinni
vindur fram.

[HUG#1671611]