2013-04-29 16:57:59 CEST

2013-04-29 16:59:00 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Rangárþing ytra - Ársreikningur

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2012


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2012 var lagður fram til fyrri umræðu
í  sveitarstjórn mánudaginn 29. apríl 2013 og vísað til síðari umræðu og
afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir
alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr.
138/2011. 

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með
skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B
hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru
í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar
íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf. 

Samkvæmt rekstrarreikningi 2012 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.158,0 millj.
kr. samanborið við 1.070,0 millj. kr. árið 2011. Hækkun milli ára er 8,2%. 

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem
námu samtals 1.017,0 millj.kr., en voru 931,7 millj. kr. á árinu 2011. Hækkun
frá fyrra ári nemur 9,2%. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2012 námu 111,1 millj.
kr. samanborið við 20,4 millj. kr. árið 2011. Megin skýringin á þessum mismun
er að á árinu 2011 voru færðar 137,4 millj. kr. til tekna vegna
endurútreiknings á gengistryggðum lánum. 

Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 37,7 millj. kr. fyrir A og B hluta
samanborið við 120,6 millj. kr. á árinu 2011.