2024-05-14 20:24:46 CEST

2024-05-14 20:24:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveitan - Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa


Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 14. maí 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 24.262 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.820 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,99% - 4,08%. Tilboðum að fjárhæð 2.780 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,06%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 31.736 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 810 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,45% - 3,55%. Tilboðum að fjárhæð 610 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,50%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is