|
|||
![]() |
|||
2017-12-06 14:26:59 CET 2017-12-06 14:27:12 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lykill fjármögnun hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLykill fjármögnun hf.: Skuldabréfaútboð 11. desember 2017Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á skuldabréfum mánudaginn 11. desember næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum LYKILL 17 1 og LYKILL 16 1. Báðir flokkar eru tryggðir með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils og hafa báðir verið teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. LYKILL 17 1 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fasta 3,95% vexti og greiðir jafnar árlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 15. maí 2024. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru að nafnverði 4.810.000.000 kr. LYKILL17 1 verður boðinn út á fastri ávöxtunarkröfu 3,85% sem samsvarar hreina verðinu 100,304. LYKILL 16 1 er óverðtryggður flokkur sem ber fljótandi vexti (1M REIBOR + 1,10%) og greiðir jafnar mánaðarlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 16. október 2023. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru að nafnverði 3.200.000.000 kr. LYKILL 16 1 verður boðinn út á föstu verði, 100,00 (pari), sem jafngildir 5,59% ávöxtunarkröfu miðað við núverandi eins mánaða REIBOR sem er 4,35%. Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Skuldabréfin eru gefin út í 10 m.kr. einingum og verða skráð í Kauphöll. Lágmarkstilboð er 20.m.kr. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Gjalddagi áskrifta er 15.desember. Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/ Nánari upplýsingar veita: Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s: 840 4145 Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s: 896 6566 Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700 [] |
|||
|