|
|||
2014-09-15 19:25:23 CEST 2014-09-15 19:26:10 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Útgáfa sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á verðtryggðum sértryggðum skuldabréfum sem skráð eru á NASDAQ OMX Iceland og var flokkurinn ISLA CBI 20 stækkaður um 1.140.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Heildarstærð ISLA CBI 20 er nú orðin 2,1 ma. kr. en alls hefur Íslandsbanki gefið út sjö flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 29,47 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu var 1,48ma. kr., en 77% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 22. september næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka. Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1856053] |
|||
|