2009-08-05 16:43:39 CEST

2009-08-05 16:44:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

- Samningar um viðskiptavakt með skuldabréf Reykjavíkurborgar á eftirmarkaði


Þann 30. júlí 2009,  skrifuðu MP Banki hf., Íslandsbanki og Saga Capital
Fjárfestingarbanki hf., undir samninga við Reykjavíkurborg í tengslum við
viðskiptavakt á eftirmarkaði með bréf Reykjavíkurborgar í flokki RVK 09 1.
Tilgangur samningsins er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og koma
á virkri verðmyndum á eftirmarkaði með skuldarbréf Reykjavíkurborgar. 

Þann 6. ágúst 2009,  munu MP Banki hf., Íslandsbanki og Saga Capital
Fjárfestingarbanki hf., hefja viðskiptavakt með RVK 09 1. 

Meginatriði samningsins er eftirfarandi:

1. Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram kaup- og sölutilboð í NASDAQ
   OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar í flokkinn RVK 09 1. 

2. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 20 m.kr að nafnverði.
   Jafnframt er viðskiptavaka skylt að endurnýja tilboð sín í kauphöll innan 15
   mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. 

3. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra
   tilboða og má mest vera 1,0%. 

4. Eigi viðskiptavaki viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 100 m.kr. að
   nafnverði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup-
   og sölutilboða það sem eftir  lifir viðskiptadags. 

5. Viðskiptavakar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem
   Reykjavíkurborg veitir gegn tryggingu. Hver og einn viðskiptavaki á kost á að
   fá verðbréfalán að hámarki kr.65.000.000,-  að nafnverði hverju sinni. 


f.h. Reykjavíkurborgar:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri
Sími: +354 411 3787
birgir.bjorn.sigurjonsson@reykjavik.is