2009-08-05 22:23:59 CEST

2009-08-05 22:24:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

Exista hafnar fullyrðingum um óeðlilegar lánafyrirgreiðslur


Exista hf. vill í tilefni af fréttaflutningi um lánveitingar Kaupþings banka
hf. til félagsins taka fram, að fjármögnun Exista hefur frá árinu 2007 almennt
farið fram án veðtrygginga í eignum félagsins. Tugir alþjóðlegra banka hafa
lánað Exista með sambærilegum skilmálum og Kaupþing án veðtrygginga. Um þessar
mundir vinnur Exista með lánveitendum sínum að því að endurskipuleggja
skuldbindingar félagsins með það að markmiði að endurgreiða þær á komandi árum. 

Þá vill Exista taka fram að félagið dró úr lánum sínum hjá Kaupþingi yfir árið
2008 og greiddi niður lán sem nemur um 20 milljörðum króna á síðasta
ársfjórðungi fyrir fall bankans. Í lok september 2008 námu lánveitingar frá
Kaupþingi banka hf. um 16% af heildarlánsfjármögnun Exista hf. 

Exista hafnar því fullyrðingum um að félagið hafi notið óeðlilegrar
lánafyrirgreiðslu hjá Kaupþingi banka.