2009-08-05 22:59:17 CEST

2009-08-05 23:00:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Alfesca hf. - Hluthafafundir

- Hluthafafundur boðaður 12. ágúst 2009


Að kröfu Rekstrarfélags Nýja Kaupþings banka hf. vegna sjóðanna Kaupthing ÍS-5,
Kaupþing ÍS-15 og ICEQ verðbréfasjóðs, Gildis lífeyrissjóðs, Sameinaða
lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs boðar stjórn Alfesca hf. til
hluthafafundar á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 12. ágúst kl. 17:00. 
Á dagskrá fundarins verða tekin fyrir eftirtalin mál:   
1.      Yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf., dagsett
25. júní 2009. 


2.	Að fulltrúi Saga Capital eða stjórn Alfesca hf. geri ítarlega grein fyrir 
verðmatinu sem bankinn vann fyrir stjórn Alfesca hf. skv. 7.mgr. 104.gr. VVL og
birt hefur verið hluthöfum í Kauphöll Íslands.  Meðal annars verði með
sviðsmyndum og næmnitöflum gert grein fyrir forsendum um framtíðarvöxt og
ávöxtunarkröfu og áhrifum þess á verðmatið. Einnig verði gert nánar grein fyrir
samanburði á kennitölum sambærilegra fyrirtækja á markaði. Óskað er eftir að fá
aðgang að verðmatinu sjálfu. Umræður. 

3.	Að fulltrúi frá IFS Ráðgjöf ehf. kynni verðmat sitt á Alfesca hf. sem unnið
var fyrir hluthafa í tengslum við framkomið yfirtökutilboð. Umræður. 

4.	Hluthafafundur samþykki að hlutabréf Alfesca hf. verði áfram skráð hjá
Nasdaq OMX Iceland og/eða verði tekin til viðskipa á öðrum skipulegum
verðbréfamarkaði. Samið verði við a.m.k. 1 viðskiptavaka með bréf félagsins.
Umræður. 

5.	Hluthafafundur samþykki að hluthafar utan yfirtökutilboðs fái
áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum. Umræður. 

6.      Að lagðir verði fram og gert grein fyrir þeim samningum sem aðilar
yfirtökutilboðs hafa gert sín á milli um stjórn og rekstur Alfesca hf. á næstu
árum, sem vísað er til í  inngangi í tilboðsyfirliti á bls. 4, svo aðrir
hluthafar geti betur myndað sér skoðun á framtíðarrekstri félagsins. Umræður. 

Fundurinn fer fram á ensku.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf
fundarins. 
5. ágúst 2009
Stjórn Alfesca hf.