|
|||
2014-04-11 16:43:00 CEST 2014-04-11 16:43:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0715 OG RIKV 14 1015Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0715 og RIKV 14 1015 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 14 0715: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.130 m.kr. að nafnverði. Öllum tilboðum var hafnað. RIKV 14 1015: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.730 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 630 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,959 (flatir vextir 4,10%). |
|||
|