2011-10-28 19:11:55 CEST

2011-10-28 19:12:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Nýherji hf gerir samning um viðskiptavakt við Landsbankann


Nýherji hf (NYHR) hefur gert samning við Landsbankann hf um viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn
tekur gildi frá og með 31. október 2011 og gildir til og með 31. október 2012
en er en uppsegjanlegur af hálfu Landsbankans með eins mánaðar fyrirvara.
Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf NYHR í NASDAQ OMX
Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði
með skilvirkum og gagnsæjum hætti. 


Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í
hlutafé NYHR, að lágmarki kr. 200.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn
ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera
meiri en 5,0%. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er
tekið að fullu. Breytist verð NYHR innan dagsins um meira en 10% er
Landsbankanum heimilt að tvöfalda hámarks mun á kaup- og sölutilboðum það sem
eftir er dagsins. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Landsbankinn er
skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 10.000.000,- að markaðsvirði.