|
|||
![]() |
|||
2015-05-07 14:18:47 CEST 2015-05-07 14:19:48 CEST REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn OFAN SVÍV - FyrirtækjafréttirUppgreiðsla á skuldabréfaflokki OFANSV 11 1OFAN SVÍV, fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 23. desember 2011 út skuldabréfaflokkinn OFANSV 11 1, sem skráður er í Kauphöll Íslands. Lántaki sjóðsins, Reginn atvinnuhúsnæði ehf., hefur í dag tilkynnt sjóðnum að hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum. Uppgreiðslugjald nemur 1,0% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga. Næsti gjalddagi er 7. júní 2015 og verður flokkurinn greiddur upp þann dag. Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.: S: 444 7469 |
|||
|