|
|||
![]() |
|||
2016-06-20 11:23:58 CEST 2016-06-20 11:23:58 CEST REGLERAD INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 24 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 17.198 eigin hluti að kaupverði 196.057 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) ------------------------------------------------------------------------ ------------------------------------------------------------------------ 15.6.2016 11:16 17.198 11,40 196.057 Samtals 17.198 196.057 ------------------------------------------------------------------------ Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. Sjóvá átti 10.521.295 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 10.538.493 eigin hluti eða sem nemur 0,67% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 622.720 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,04% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 7.250.388 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000 |
|||
|