|
|||
![]() |
|||
2016-05-30 13:45:35 CEST 2016-05-30 13:45:35 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAflandskrónaútboð jákvætt fyrir lánshæfi ÍslandsMatsfyrirtækið Moody´s gaf í dag út stutt álit um fyrirhugað útboð Seðlabanka Íslands á aflandskrónum. Meðfylgjandi er lausleg þýðing á lokamálsgrein álitsins. Í áliti Moody´s kemur fram það mat þeirra að fyrirhugað útboð sé jákvætt fyrir lánshæfi Íslands að því leyti að það gefur fjárfestum, sem eiga fé bundið í svokölluðum aflandskrónum, tækifæri til útgöngu óski þeir þess. Það er enn fremur mat fyrirtækisins að útboðið gæti orðið til þess að létta á þrýstingi á innlendar eignir sem myndast hefur vegna gjaldeyrishafta og má meðal annars merkja í mikilli styrkingu krónunnar á innlendum gjaldeyrismarkaði á síðustu tveimur árum. Sérfræðingar Moody´s telja tímasetningu útboðsins skynsamlega þar sem stjórnvöld biðu með að halda slíkt útboð þar til gjaldeyrisforði þjóðarinnar var orðinn nægilega stór til að taka mætti á aflandskrónuvandanum, en að forðinn dygði jafnframt fyrir mögulegri erlendri fjármagnsþörf hagkerfisins. |
|||
|