2013-01-22 09:48:49 CET

2013-01-22 09:49:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Jóhann Sigurjónsson tekur við sem fjármálastjóri Regins hf.


Vísað er í fréttatilkynningu Regins frá 12. desember 2012 um ráðningu nýs
fjármálastjóra hjá Reginn hf.   Fyrirhugað var að Jóhann Sigurjónsson tæki við
sem fjármálastjóri félagsins í mars nk.  Nú hefur orðið sú breyting á að frá og
með þriðjudeginum 22. janúar 2013 mun Jóhann Sigurjónsson taka við sem
fjármálastjóri Regins hf.  Hann tekur við af Önnu Sif Jónsdóttir sem hefur
starfað sem fjármálastjóri félagsins frá árinu 2009.  Anna Sif Jónsdóttir mun á
sama tíma láta af störfum og hverfa til starfa hjá MP banka.  Stjórn og
starfsfólk Regins hf.  þakkar henni fyrir vel unnin störf fyrir Reginn og óskar
henni jafnframt velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi. 



Frekari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson.

Forstjóri Regins hf.

Sími:  5128900 / 8996262