2015-12-21 15:37:13 CET

2015-12-21 15:37:13 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Útgáfuáætlun Arion banka árið 2016


Sértryggð skuldabréf

  -- Stefnt er að því að heildarútgáfa markflokka sértryggðra skuldabréfa verði
     á bilinu 20-33 milljarðar króna á árinu 2016
  -- Markflokkar sértryggðra skuldabréfa eru verðtryggðu flokkarnir ARION CBI 21
     og ARION CBI 29 og óverðtryggði skuldabréfaflokkurinn ARION CB 22
  -- Stefnt er að því að lágmarksstærð markflokks sé 10 milljarðar króna áður en
     útgáfu er hætt, skipting útgáfu á milli markflokka ræðst af markaðsaðstæðum
     og fleiri þáttum.  Til greina kemur að bæta við nýjum markflokkum
     skuldabréfa á árinu 2016
  -- Útboð sértryggðra skuldabréfa verða í hverjum mánuði.  Útboð fara að
     jafnaði fram fyrsta miðvikudag í mánuði og verður uppgjörsdagur viku síðar
     – sjá dagsetningar hér að neðan.
  -- Áhersla verður á seljanleika sértryggðra skuldabréfa, en Landsbankinn,
     Íslandsbanki og Kvika eru viðskiptavakar sértryggðra skuldabréfa. 
     Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. 
     Lágmarksfjárhæð að nafnvirði í markflokka skuldabréfa skal vera 80 mkr. að
     nafnvirði en lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20 mkr.  Fyrir
     markflokka gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 makr. skal
     fjárhæð tilboða vera 60 mkr. en 80 mkr. þegar stærð flokks hefur náð 10
     makr. að nafnvirði



Víxlar

  -- Arion banki mun halda áfram með mánaðarleg víxlaútboð.  Víxlaútboð fara að
     jafnaði fram um miðjan mánuð og er uppgjörsdagur í kringum 20. dags hvers
     mánaðar.  Heildarútgáfa víxla er óákveðin og ræðst af markaðsaðstæðum



EMTN og önnur fjármögnun

  -- Stefnt er að reglulegri útgáfu erlendis af Euro Medium Term Note (EMTN)
     skuldaramma bankans.  Bankinn stefnir að því að auka aðgengi að erlendum
     fjármálamörkuðum á komandi misserum.  Útgáfur í erlendri mynt eru þó ávallt
     háðar markaðsaðstæðum hverju sinni
  -- Arion banki stefnir að því að auka fjölbreytni í fjármögnun.  Bankinn mun
     skoða aðra fjármögnunarkosti og fjölga fjármögnunarleiðum sé það hagfellt
     fyrir bankann.  Kemur því til greina að gefa út óveðtryggð skuldabréf,
     víkjandi skuldabréf eða sértryggð skuldabréf í erlendum myntum og/ eða
     íslenskum krónum sé eftirspurn eftir slíku hjá fjárfestum.  Upphæðir og
     tímasetningar slíkrar fjármögnunar fer eftir markaðsaðstæðum og viðtökum
     fjárfesta almennt.



Útboð sértryggðra skuldabréfa verða á eftirfarandi dagsetningum:

06. janúar 2016

03. febrúar 2016

02. mars 2016

06. apríl 2016

04. maí 2016

01. júní 2016

06. júlí 2016

10. ágúst 2016

07. september 2016

05. október 2016

02. nóvember 2016

07. desember 2016



Arion banki áskilur sér rétt til að breyta þessari áætlun, þ.m.t. fella niður,
fjölga eða breyta útboðs-dögum, breyta áætlaðri útgáfufjárhæð og gera aðrar
breytingar eins og þörf er á, án fyrirvara.