|
|||
2009-04-14 12:45:10 CEST 2009-04-14 12:46:18 CEST REGULATED INFORMATION Askar Capital hf. - Fyrirtækjafréttir- Fjárhagsleg endurskipulagning Askar CapitalÞann 17. mars gekk skilanefnd Glitnis að veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance AB, móðurfélagi Askar Capital. Með þessu færðust yfirráð yfir Askar Capital til skilanefndar Glitnis. Eiginfjárhlutfall Askar Capital er nú undir lögbundnu 8% lágmarki og hefur félagið frest frá Fjármálaeftirlitinu til að koma eiginfjárhlutfallinu í lögbundið horf. Unnið er að lausn málsins með nýjum eiganda bankans, skilanefnd Glitnis, og öðrum kröfuhöfum. Nánari upplýsingar veitir Benedikt Árnason, forstjóri, í síma 665 8859. |
|||
|