|
|||
2009-08-31 18:30:01 CEST 2009-08-31 18:31:02 CEST REGULATED INFORMATION Opin Kerfi Group hf. - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2009Stjórn Opin Kerfi Group hefur staðfest árshlutareikningi félagsins fyrir tímabilið 1.janúar - 30.júní 2009 og hefur hann verið kannaður af endurskoðanda þess. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla IFRS. Lykiltölur:Sjá viðhengi. Opin Kerfi Group hf Heildar rekstrartekjur Opin Kerfi Group á fyrri helmingi ársins 2009 voru 3.636 milljónir króna, samanborið við 4.806 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Innifallið í samanburðartölum eru rekstrartölur Kerfi A/S í Danmörku en veltan í dönskum krónum var fyrir fyrstu 6 mánuði síðasta árs 66,9m, EBITDA neikvæð um 6m dkk og rekstrarniðurstaða félagsins neikvæð um 5,8m danskra króna. Rekstrarniðurstaða Opinna Kerfa Group hf fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var neikvæð um 48 milljónir króna samanborið við 187 milljónir í hagnað árið áður. Forráðamenn félagsins gera ráð fyrir að rekstur félagsins verði þungur á yfirstandandi ári. Hagnaður samstæðunnar eftir skatta var 20 milljónir króna á tímabilinu en var á fyrra ári fyrir sama tímabil 318 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall félagsins er 35,5% og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli 3,1% sem er lægri en á fyrri hluta síðasta árs. Fjöldi starfsmanna var á tímabilinu um 278. Dótturfélög Opin Kerfi Group hf samanstendur í af móðurfélaginu og einu rekstrarfélagi sem er Kerfi AB í Svíþjóð . Kerfi AB Rekstrartekjur Kerfi AB í sænskum krónum talin fyrir fyrstu 6 mánuði ársins eru 242mkr í stað 324m fyrir sama tímabil á árinu 2008. EBITDA lækkaði tölvert milli ára eða úr 23,7 SEK í -2,8m SEK fyrir sama tímabil. Rekstur félagsins það sem af er ársins hefur einkennst af samdrætti á sænskum markaði sem hefur skilað sér í mun lakari afkomu félagsins en fyrir sama tímabil árið 2008. Horfur í Svíþjóð eru að tekjurnar muni haldast á svipuðum nótum það sem eftir er árs en áfram er unnið að lækkun kostnaðar og endurskipulagningar í rekstri. Gert er ráð fyrir að afkoman verði mun lakari í ár en á því síðasta Forstjóri í Kerfi AB er Harri Kahkonen. Í stjórn Opin Kerfi Group hf sitja Þorsteinn Guðbrandsson formaður, Ólafur Þór Jóhannesson og Jóhann Þór Jónsson. Elín Þórðardóttir (elintho@simnet.is) veitir nánari upplýsingar í síma 898 6319 |
|||
|