2017-01-26 11:43:34 CET

2017-01-26 11:43:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs desember 2016


Vanskil heimila lækkuðu umtalsvert á árinu 2016

Vanskil heimila með fasteignalán hjá Íbúðalánasjóði lækkuðu umtalsvert á árinu
2016. Heildarfjárhæð vanskila lækkaði úr 6,2 milljörðum króna í 2,1 milljarð
frá ársbyrjun. Undirliggjandi kröfuvirði einstaklingslána í vanskilum fór úr
31,1 milljarði króna í 15,5 milljarða. Kröfuvirði vanskila á útlánum til
lögaðila lækkaði úr 17,3 milljörðum króna í 2,0 milljarða. 

Heimilum með lán í vanskilum hjá sjóðnum fækkaði um 36% á árinu. Af þeim 37.000
heimilum sem voru með fasteignalán hjá Íbúðalánasjóði í loks árs 2016 voru 857
heimili í vanskilum. Eru því um 98% heimila með lán hjá Íbúðalánasjóði í
skilum. 

Útlán tvöfaldast milli ára

Heildarútlán sjóðsins voru 12,5 milljarðar króna samanborið við 5,8 milljarða á
árinu 2015. Útlán hafa því rúmlega tvöfaldast milli ára. Stór hluti þessara
lánveitinga eru til lögaðila vegna leiguíbúða. 

Sala íbúða í eigu Íbúðalánasjóðs gengur vel

Íbúðalánasjóður seldi 890 eignir á árinu 2016 samanborið við 898 eignir árið
2015. Íbúðarlánasjóður átti 662 eignir í lok desember 2016. Af þeim voru 268
eignir í sölumeðferð. Áætlanir sjóðsins gera ráð fyrir sölu 400 eigna að
lágmarki á árinu 2017 auk innkomu 200 nýrra eigna. Samkvæmt því ætti
Íbúðalánasjóður að eiga um 462 eignir í árslok 2017. 

Frekari upplýsingar um stöðu lánasafns og markaðsupplýsingar tengdar útgáfum
sjóðsins má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu fyrir desember.