|
|||
2014-01-31 10:39:40 CET 2014-01-31 10:40:42 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - ÁrsreikningurUppgjör ársins 2013 - Kynningarfundur 6. febrúar 2014Marel hf. mun birta ársreikning sinn fyrir árið 2013 eftir lokun markaðar þann 5. febrúar 2014. Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem stjórnendur félagsins, þeir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri, Erik Kaman, fjármálastjóri og Sigsteinn P. Grétarsson aðstoðarforstjóri kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2013. Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 6. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast Morgunverður frá kl. 8:00. |
|||
|