2014-10-29 10:10:00 CET

2014-10-29 10:10:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Hampiðjan – Samruni fjárhagslega tengdra aðila


Hluthafar Svöluhrauns ehf. og Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf. staðfestu á
hluthafafundi sem haldinn var í gærkvöldi samruna félaganna tveggja í samræmi
við samrunaáætlun dags. 15. ágúst 2014. Með samrunanum yfirtekur
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. (yfirtökufélag) einkahlutafélagið Svöluhraun
(yfirtekið félag) og hið sameinaða félag mun starfa framvegis undir nafni og
kennitölu yfirtökufélagsins. 

Kristján Loftsson, stjórnarmaður í Hampiðjunni hf., er stjórnarformaður
Svöluhrauns ehf. og Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf. og Vilhjálmur
Vilhjálmsson, stjórnarformaður Hampiðjunnar hf., er jafnframt stjórnarmaður í
báðum félögum. Svöluhraun ehf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. teljast því
til fjárhagslega tengdra aðila fruminnherja félagsins. 

Fiskveiðahlutafélagð Venus hf. á hlutafé að nafnverði kr. 65.428.818 í
Hampiðjunni, eða 13,09% af heildarhlutafé félagsins. Fiskveiðahlutafélagið
Venus hf. á 39,50% eignarhlut í Hval hf.  en dótturfélag þess Vogun hf. á 37,6%
hlut í Hampiðjunni.  Svöluhraun ehf. á hlutafé að nafnverði kr. 7.500.000 í
Hampiðjunni, eða 1,5% af heildarhlutafé félagsins.  Eftir samrunann verður
eignarhlutur Fiskveiðahlutafélagsins Venusar hf.  í Hampiðjunni að nafnverði
kr. 72.928.818, eða 14,59% af heildarhlutafé félagsins.