2011-10-28 19:07:05 CEST

2011-10-28 19:08:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Nýherji hf. - Ársreikningur

Uppgjör Nýherja hf. á þriðja ársfjórðungi 2011.


Hagnaður Nýherja hf. fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA - nam
376 mkr fyrstu níu mánuði 2011. 

Helstu niðurstöður:

  -- EBITDA var 77 mkr á þriðja ársfjórðungi, en var 169 mkr á sama tímabili
     árið á undan.
  -- Heildarhagnaður var 18 mkr fyrstu 9 mánuði ársins. 
  -- 90 mkr tap er hjá Applicon í Danmörku í ársfjórðungnum vegna tafa við
     afhendingu hugbúnaðarlausnar.
  -- Rekstur og afkoma allra annarra rekstrareininga og dótturfélaga
     samstæðunnar í takt við áætlanir.
  -- Nýherji hefur samið við Landsbanka Íslands um að annast viðskiptavakt með
     hlutabréf félagsins.



Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Afkoma Nýherjasamstæðunnar er undir áætlunum í ársfjórðungnum. Afkoma allra
eininga og dótturfélaga samstæðunnar er í takt við áætlanir, ef frá er talin
Applicon A/S í Danmörku. Félagið hefur ásamt samstarfsfyrirtæki í Danmörku
unnið að innleiðingu og afhendingu á umfangsmikilli lausn fyrir opinberan aðila
og hafa tafir við afhendingu lausnarinnar valdið verulegum viðbótarkostnaði
fyrir Applicon. Rekstur annarra eininga samstæðunnar hefur verið ágætur og
horfur góðar í fjórða ársfjórðungi“. 



Sjá viðhengi.