2025-03-27 20:53:41 CET

2025-03-27 20:53:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nova Klúbburinn hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Nova Klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 27. mars 2025


Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 27. mars 2025. Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

Sjálfkjörið var í stjórn félagsins en stjórn skipa eftirtalin:

  • Hrund Rudolfsdóttir  
  • Jón Óttar Birgisson  
  • Jóhannes Þorsteinsson  
  • Sigríður Olgeirsdóttir 
  • Steinunn Hlíf Sigurðardóttir

Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Sigríður Olgeirsdóttir endurkjörin formaður stjórnar.

Í tilnefningarnefnd félagsins voru kjörin:  

  • Thelma Kristín Kvaran  
  • Helgi Bjarnason

Samþykkt var tillaga stjórnar um greiðslu arðs sem nemur 0.082 kr. á hlut, sem jafngildir um 300 milljónum kr., að teknu tilliti til eigin bréfa.

Samþykkt var tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár félagsins sem nemur 130.091.708 kr. að nafnvirði, en að teknu tilliti til lækkunarinnar nemur heildarhlutfé félagsins 3.553.874.756 kr. að nafnvirði. 

Samþykktar voru tillögur stjórnar um starfskjarastefnu félagsins og kaupréttaráætlanir.

Samþykkt var tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum sem fólu í sér breytingu á kjörtímabili stjórnar úr einu ári í tvö ár.

Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð. 

Viðhengi