|
|||
2013-10-25 14:16:30 CEST 2013-10-25 14:17:31 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - HluthafafundirTilkynning um dagsetningu aðalfundar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. árið 2014Samkvæmt félagssamþykktum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. skal stjórn félagsins fyrir lok október ár hvert ákveða dagsetningu aðalfundar félagsins á komandi ári ásamt því að tilgreina þann frest sem hluthafar hafa til þess að gera kröfu um það til stjórnar að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum. Stjórn félagsins hefur ákveðið að aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. árið 2014 skuli fara fram fimmtudaginn 20. mars 2014. Óski hluthafi, að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundi skal hann hafa gert félagsstjórn grein fyrir því skriflega eða með rafrænum hætti á stjorn@tm.is fyrir fimmtudaginn 20. febrúar 2014. Kröfunni skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. |
|||
|