2013-09-04 17:44:10 CEST

2013-09-04 17:45:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15. nóvember 2013


Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við
heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum
sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis
hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem komu
húsbréfakerfinu á fót. 

 Á  þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt.
Yfirlit um hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingablaðinu 15. september
n.k.Við útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti flokki,
á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna
fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er
fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar, eins og lögin gera ráð
fyrir. 

Gert er ráð fyrir að aukaútdráttum verði áfram beitt til að jafna sjóðsstreymi
Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna, í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir. 

Húsbréf úr eftirtöldum órafvæddum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og
koma til greiðslu 15. nóvember 2013: 

Heiti                       Nafnverð 
1. flokkur 90  IBH15-0815   6.550.000
2. flokkur 90  IBH15-1115   5.090.000
2. flokkur 91  IBH16-0515   4.180.000
3. flokkur 92  IBH17-0815  15.960.000
2. flokkur 93  IBH18-0815   7.420.000
2. flokkur 94  IBH19-0515  70.530.000
3. flokkur 94  IBH19-0815  24.120.000