2009-09-01 12:09:43 CEST

2009-09-01 12:10:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Hluthafafundir

Tillaga stjórnar Hf. Eimskipafélags Íslands um breytingu á nafni félagins


Tillaga stjórnar Hf. Eimskipafélags íslands
um
breytingu á nafni félagsins

Hluthafafundur Hf. Eimskipafélags Íslands haldinn 8. september samþykkir að
breyta nafni félagsins í A1988 hf. 
Skal 1. gr. samþykkta félagsins breytast og verða svohljóðandi;

“Félagið er hlutafélag og nafn þess er A1988 hf. ”



Tillaga stjórnar HF. Eimskipafélags Íslands
um 
staðfestingu á samningum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins




„Hluthafafundur Hf. Eimskipafélags Íslands haldinn 8. september 2009 staðfestir
heimild til stjórnar um að framselja allar eigur félagsins til skiparekstrar
til Eimskip Ísland ehf. og hækka þannig hlutafé þess félags og fá sem gagngjald
hluti í Eimskip Ísland ehf. Jafnframt staðfestir fundurinn heimild til stjórnar
félagsins að framselja framangreinda hluti í Eimskip Ísland ehf., ásamt öllum
öðrum eignum félagsins að frátöldum 51% hlut í Eimskip Tango ehf., til
félagsins L1003 ehf. gegn afhendingu hluta í L1003 ehf.” 




Greinargerð:

Framangreind tillaga er gerð sem liður í fjárhagslegri endurskipulagningu
félagsins í framhaldi af samþykkt nauðasamnings félagsins sem staðfestur var
þann 28. ágúst 2009 af Héraðsdómi Reykjavíkur. Í samningum sem gerðir voru í
tengslum við nauðasamningsfrumvarp félagsins var gert ráð fyrir að skiparekstur
félagsins yrði færður til nýs félags, L1003 ehf. (sem síðar mun fá nafnið
Eimskipafélag Íslands ehf.). 

Samkvæmt nauðasamningi félagsins munu kröfuhafar þess fá hluti í L1003 ehf. sem
greiðslu á kröfum sínum á hendur félaginu. 

Þeim ráðstöfunum sem hér er fjallað um eru gerð gerð ítarleg skil í greinargerð
fyrir kröfuhafa sem fylgdi nauðasamningsfrumvarpi félagsins. Með tillögu
þessari er staðfest heimild stjórnar til að ganga frá þeim samningum sem kveðið
er á um nauðasamningi félagsins.