|
|||
![]() |
|||
2015-12-11 18:38:25 CET 2015-12-11 18:38:25 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirNiðurstöður hlutafjárútboðs Nýherja hf., útboðsgengi 16,0Niðurstöður hlutafjárútboðs Nýherja hf., útboðsgengi 16,0 Töluverð umframeftirspurn var eftir hlutabréfum Nýherja hf. REYKJAVÍK – 11. desember 2015 Töluverð umframeftirspurn var eftir hlutabréfum í Nýherja í hlutafjárútboði sem lauk í dag kl 16:00. Útboðsgengi er 16,0 krónur á hlut. Heildarstærð útboðsins nemur 9,76% af útgefnu hlutafé í félaginu eða 40 milljónum hlutum og er heildarsöluandvirði þeirra 640 milljónir króna. Alls bárust tilboð í 118,9 milljónir hluti á verðbilinu 14,5-18,0 krónur á hlut. Kvika banki hf. annast framkvæmd útboðsins og mun senda fjárfestum tilkynningu um úthlutun í útboðinu og greiðslufyrirmæli þegar NASDAQ OMX Iceland hf. hefur staðfest að þau nýju hlutabréf, sem útboðið náði til, hafi verið gefin út og verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Listi yfir 20 stærstu hluthafa Nýherja verður birtur um leið og skráning og greiðsla á hinum nýjum bréfum hefur átt sér stað. Finnur Oddsson forstjóri Nýherja: „Þátttaka í útboðinu endurspeglar mikið traust til Nýherja og það er sérlega ánægjulegt að sjá afar jákvæð viðbrögð fagfjárfesta við útboðinu. Niðurstaðan mun styrkja félagið og styðja enn frekar við verðmyndun á hlutabréfum Nýherja. Fyrir hönd Nýherja þakka ég auðsýnt traust og býð nýja hluthafa sérstaklega velkomna.“ NÝHERJI HF. Nýherji hf.(NASDAQ OMX: NYHR.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá móðurfélaginu starfa 250 manns en hjá samstæðunni um 500. Dótturfélög Nýherja eru TM Software, TEMPO og Applicon, á Íslandi og í Svíþjóð. Nýherji er skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.nyherji.is Nánari upplýsingar Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is. Til athugunar fyrir fjárfesta Nýherji vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum. |
|||
|