2016-08-31 10:56:56 CEST

2016-08-31 10:56:56 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Einkaviðræður um kaup á rekstri og eignum 365 miðla hf.


Fjarskipti  hf. og 365 miðlar hf. hafa undirritað samkomulag um einkaviðræður og
helstu  forsendur og  skilmála kaupsamnings  varðandi möguleg  kaup á  eignum og
rekstri  ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla  hf. Kaupin eru háð ýmsum
forsendum og fyrirvörum.

Undir  ljósvakamiðla  365 miðla  hf.  falla  bæði  sjónvarps-  og útvarpsrekstur
félagsins.  Helstu sjónvarpsstöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin
og   á   útvarpssviðinu   eru  það  meðal  annars  Bylgjan,  FM957  og  X-ið.  Á
fjarskiptamarkaði  hafa  365 miðlar  3,4% markaðshlutdeild  á  farsímamarkaði og
12,6% á    internetmarkaði    samkvæmt    nýjustu   tölfræðiskýrslu   Póst-   og
fjarskiptastofnunar.  Gangi viðskiptin  eftir verður  til öflugt  fjarskipta- og
fjölmiðlafyrirtæki  á Íslandi, sem mun bjóða upp á fjölbreytt vöruframboð og enn
betri þjónustu,  með um 23 milljarða króna veltu á ári.

Forsendur um kaupverð eru grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum
að  rekstrarhagnaður  hins  keypta  fyrir  fjármagnsliði,  skatta  og afskriftir
(EBITDA), að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið allt að 2 milljörðum króna á
ársgrundvelli.  Kaupverð, miðað við  framangreindar forsendur væri  allt að 3,4
milljarðar  króna; greitt  með 1,7 milljörðum  króna í  reiðufé annars  vegar og
32.380.952 hlutum í Fjarskiptum hf. hins vegar, auk yfirtöku vaxtaberandi skulda
að  fjárhæð 4,6 milljarðar  króna. Við  útreikning á  fjölda hluta  er miðað við
gengið  52,5 kr. á hlut sem fæli í sér 16,7% álag á dagslokagengi Fjarskipta hf.
þann  30. ágúst 2016. Þar sem viðskiptin myndu fela í sér kaup á ákveðnum eignum
og  rekstri tækju Fjarskipti hf.  m.a. ekki yfir mögulega  áhættu í tengslum við
skattaleg  málefni né leiguskuldbindingar 365 miðla hf. Eignir 365 miðla hf. sem
undanskildar  eru  í  viðskiptunum  samkvæmt  samkomulaginu  eru Fréttablaðið og
visir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri fréttastofu og verður samið um
miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.

Þar  sem aðilar eru samkeppnisaðilar  á markaði hefur kaupandi  enn sem komið er
haft aðgang að takmörkuðum upplýsingum um hið selda. Samkomulag þetta er því háð
ýmsum forsendum og skilyrðum, þar á meðal að metinn rekstrarhagnaður og horfur í
rekstri  byggi á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd
áreiðanleikakönnunar,  auk  samþykkis  Samkeppniseftirlitsins  og  eftir atvikum
annarra eftirlitsaðila. Nánar verður gert grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur
kaupsamningur  kemst á eða ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir
má  gera ráð fyrir að  gengið verði endanlega frá  kaupunum á fyrri hluta ársins
2017.



Stefán Sigurðsson forstjóri Vodafone:

"Stórt  skref hefur nú verið stigið í  að skoða möguleg kaup á ljósvakamiðlum og
fjarskiptaþjónustu 365 miðla. Við sjáum samþættingu fjarskipta og fjölmiðlaveita
víða  erlendis þar  sem Vodafone  í Nýja  Sjálandi og  Hollandi hafa  nú nýverið
sameinast leiðandi fjölmiðlaveitum á þeirra markaði. Um spennandi verkefni er að
ræða  þó of snemmt sé að segja til um hver endanleg niðurstaða verður. Við munum
nýta næstu mánuði vel til þess að kanna hvort forsendur kaupanna standist."



Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Báru Mjöll Þórðardóttur s. 669-9299


[]