2017-02-28 15:06:25 CET

2017-02-28 15:06:25 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Spölur ehf. - Ársreikningur

Spölur - Ársuppgjör 1. janúar 2016 til 31. desember 2016



  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2016 til 31.
     desember 2016 nam
635 mkr., hagnaður á rekstrarárinu 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 nam
     461 mkr.

Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða ársfjórðungi félagsins sem er 1.
     október 2016 til 31.
desember 2016 nam 114 mkr. en á sama tíma árið á undan nam hagnaður
     félagsins 72 mkr.

Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.
 

  -- Greiðsluflæðið gefur betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna
     vísitöluhækkana
lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018.
     Greiðslugeta félagsins undanfarin

5 ár hefur verið sterk. Um 815 mkr. (2015:700 mkr.) voru greiddar í
     afborganir og vexti á
tímabilinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31.
     desember 2016 eins og

lánasamningar gera ráð fyrir.
  -- Veggjald ársins nam 1.405 mkr. til samanburðar við 1.197 mkr. árið áður sem
     er 17,4 %

hækkun.
  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2016
     til 31.desember 2016

nam 422 mkr. og hækkar um rúma 35 mkr frá árinu áður þegar hann nam mkr.
     387. Helsta
breytingin er vegna aukins viðhaldskostnaðar.

  -- Afskriftir á árinu námu samtals 123 mkr. og voru á sama tímabili árið áður
     124 mkr.

  -- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka á milli ára um 43 mkr.

  -- Skuldir Spalar ehf lækka úr 2.646 mkr. þann 31. desember 2015 í 2.053 mkr.
     þann 31.

desember 2016.



Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur
meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. Tímabilið frá 1. janúar 2016 til
31. desember 2016 er átjánda fjárhagsár félagsins. Á þessu tímabili fóru 2.356
þúsund ökutæki um göngin sem greiddu veggjald sem er um 15% aukning frá
samatímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvarar því að um 6.436 ökutæki hafi
farið um göngin að meðaltali dag hvern. Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin
hafa hækkað um 2,7% frá fyrra ári. 

________________________________________________________________________________
_________________ 

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.