2013-10-30 17:13:58 CET

2013-10-30 17:15:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbréf – Útboðslýsing og reglur Landsbréf-LREAL


Meðfylgjandi eru útboðslýsing og reglur Landsbréfa-LREAL.


Landsbréf - LREAL, kt. 681212-9570, er verðbréfasjóður sem starfræktur er í

samræmi við ákvæði II. kafla í lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og

fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. Sjóðurinn er ennfremur vísitölusjóður sbr. 36
gr. 

sömu laga.


Hlutverk sjóðsins er að veita viðtöku fé til sameiginlegrar fjárfestingar í
skuldabréfum 

sem endurspegla samsetningu NOMXIREAL vísitölunnar (NASDAQ OMX Iceland

Inflation-linked Benchmark Bonds), sem NASDAQ OMX á Íslandi reiknar, á
grundvelli 

áhættudreifingar samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu.


Rekstrarfélag sjóðsins í skilningi I. kafla laga nr. 128/2011, um
verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði 

og fagfjárfestasjóði eru Landsbréf hf., kt.: 691208-0520. Félagið er
dótturfélag Landsbankans hf. 


Landsbankinn hf. annast umsjá og varðveislu fjármálagerninga sjóðsins í samræmi
við 

II. kafla C laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og
fagfjárfestasjóði. 


Endurskoðandi Landsbréfa - LREAL og Landsbréfa hf., rekstrarfélags sjóðsins, er

KPMG ehf., 590975-0449, Borgartúni 27, 105 Reykjavík.