2016-04-19 20:55:24 CEST

2016-04-19 20:55:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar.


Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um viðræður við
kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans. Eins
og tilkynnt var þann 7. apríl 2016 samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að bera
undir kröfuhafa drög að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu. Í
tilkynningunni kom einnig fram að ef samkomulag næðist ekki fyrir 15. apríl sl.
yrði óskað eftir því að sveitarfélaginu væri skipuð fjárhaldsstjórn samkvæmt
ákvæðum sveitastjórnarlaga. Með tilkynningu þann 14. apríl sl. var tilkynnt um
að samkomulag myndi ekki nást þar sem minnihluti kröfuhafa hefði synjað
samkomulagi. Reykjaneshöfn birti síðan tilkynningu 15. apríl sl. þar sem fram
kom að óbreyttu væri fyrirséð að til greiðslufalls á skuldbindingum
Reykjaneshafnar kæmi eftir 15. apríl 2016. 

Reykjanesbær og Reykjaneshöfn hafa nú sammælst með fulltrúum lífeyrissjóða, sem
eru kröfuhafar Reykjaneshafnar og synjað höfðu samkomulaginu, að láta reyna til
þrautar á næstu dögum hvort grundvöllur sé fyrir samkomulagi um fjárhagslega
endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana hans. 

Afgreiðslu tillögu bæjarstjórnar um tilkynningu til eftirlitsnefndar með
fjármálum sveitarfélaga sem var á dagskrá bæjarstjórnarfundar Reykjanesbæjar
kl. 17 í dag hefur því verið frestað til næsta bæjarstjórnarfundar sem verður
hinn 3. maí nk. 

Í kjölfarið verður leitast við að óska eftir greiðslufresti og
kyrrstöðutímabili frá kröfuhöfum Reykjaneshafnar og Reykjanesbæjar meðan
viðræðurnar standa yfir.