|
|||
2011-06-08 11:28:17 CEST 2011-06-08 11:29:18 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirKaup Lánamála ríkisins á ríkisskuldabréfum samhliða fyrsta gjaldeyrisútboði Seðlabanka ÍslandsÍ tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kemur fram að kaupendur gjaldeyris í útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Þann 23. maí tilkynntu Lánamálin kjörin sem buðust kaupendum gjaldeyris í fyrsta útboðinu sem var haldið í gær, 7. júní. Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs keyptu að nafnverði ríkisskuldabréf í eftirtöldum flokki: Flokkur Nafnverð RIKB 11 0722 300,000,000 Rétt er að benda á að ríkisverðbréfin þurfa svo að berast Lánamálum fyrir klukkan 11.00 þann 10. júní. Greiðslur eiga sér stað eftir afhendingu bréfanna og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag. |
|||
|