2008-05-20 15:00:44 CEST

2008-05-20 15:01:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Ársskýrsla/ársreikningur

17,2 milljarða króna halli á OR á fyrstu þremur mánuðum ársins



Orkuveita Reykjavíkur var rekin með 17,2 milljarða króna halla fyrstu
þrjá mánuði ársins. Óhagstæð gengisþróun skýrir niðurstöðuna alfarið.
Tekjur fyrirtækisins jukust um 480 milljónir miðað við sömu mánuði
ársins 2007. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta, EBITDA, var 3,4 milljarðar króna samanborið við 2,6 milljarða
króna rekstrarhagnað á sama tímabili árið áður.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi 31. Mars 2008
Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 17.243 milljóna króna halla á
fyrstu þrem mánuðum ársins samanborið við 4.331 milljóna króna hagnað
á sama tímabili árið áður.
Rekstrartekjur fyrstu þrjá mánuði ársins námu 6.079 milljónum króna
en voru 5.599 milljónir króna á sama tímabili árið áður.
Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta,
EBITDA, var 3.400 milljónir króna samanborið við 2.952 milljónir
króna á sama tímabili árið áður.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 22.729 milljónir króna á tímabilinu,
en voru jákvæðir um 3.483 milljónir króna á sama tímabili árið 2007.
Heildareignir þann 31. mars 2008 voru 208.991 milljón króna en voru
191.491 milljón króna í árslok 2007.
Eigið fé þann 31. mars 2008 var 71.361 milljón króna en var 88.988
milljónir króna í árslok árið 2007.
Heildarskuldir félagsins þann 31. mars 2008 voru 137.630 milljónir
króna samanborið við 102.503 milljónir króna í árslok 2007.
Eiginfjárhlutfall var 34,1% þann 31. mars 2008 en var 46,5% í árslok
2007.
Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja varð
fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um
tekjuskatt. Lögin komu til framkvæmda við álagningu tekjuskatts á
árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur
að rekstri vatnsveitu og fráveitu er þó áfram undanskilin
tekjuskatti.
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld voru neikvæð um 22,7 milljarða króna
en jákvæðir um 3,5 milljarða króna á sama tímabili árið 2007. Neikvæð
staða vegna gengismunar og gjaldmiðlasamninga nam 26,7 milljörðum
króna á tímabilinu en gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða í
raforkusölusamningum skiluðu 5,2 milljarða króna hagnaði á sama tíma.
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla.

Horfur
Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2008.
Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka
verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka
eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins, og hafa fyrstu tveir áfangar
hennar þegar verið teknir í notkun.

Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör
Allar tölur eru í millj. kr.
                                   2008     2007
Rekstrarreikningur                 1.1-31.3 1.1-31.3
Rekstrartekjur                        6.079    5.599
Rekstrargjöld                       (2.679)  (2.647)
Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA)      3.400    2.952
Afskriftir                          (1.632)  (1.375)
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (22.729)    3.483
Áhrif hlutdeildarfélaga                  42        0
(Tap) hagnaður fyrir skatta        (20.919)    5.060
Tekjuskattur                          3.676    (729)
(Tap) hagnaður tímabilsins         (17.243)    4.331
Skipting (taps) hagnaðar
Eigendur móðurfyrirtækisins        (17.220)    4.329
Hlutdeild minnihluta                   (23)        2
(Tap) hagnaður tímabilsins         (17.243)    4.331
Handbært fé frá rekstri                 736    1.601

Efnahagsreikningur                 31.03.08 31.12.07
Fastafjármunir                      192.841  183.097
Veltufjármunir                       16.151    8.394
Eignir                              208.991  191.491
Eigið fé                             71.361   88.988
Langtímaskuldir og skuldbindingar   128.721   93.205
Skammtímaskuldir                      8.909    9.298
Eigið fé og skuldir                 208.991  191.491
Kennitölur:
   Veltufjárhlutfall               1,81     0,90
   Eiginfjárhlutfall               34,1%    46,5%