2013-12-11 13:53:56 CET

2013-12-11 13:54:08 CET


REGULATED INFORMATION

English
N1 hf. - Company Announcement

Niðurstöður útboðs á hlutabréfum í N1


Mikil  umframeftirspurn var eftir  hlutabréfum N1 hf.  í almennu útboði sem lauk
9. desember síðastliðinn og bárust alls um 7.700 áskriftir. Útboðið var tvískipt
og  verða 18% hluta í félaginu seld á 18,01 krónu  á hlut í tilboðsbók B en 10%
seld  á 15,3 krónur  á hlut  í tilboðsbók  A. Heildarstærð  útboðsins nemur 280
milljónum hluta og er heildarsöluandvirði þeirra 4.770 milljónir króna.

Þátttakendur  í  tilboðsbók  A  skiluðu  um  7.200 áskriftum og í ljósi mikillar
þátttöku  er hámarksúthlutun  um 183.000 krónur  að kaupverði  á hverja áskrift.
Áskriftir  að  lægri  fjárhæðum  ásamt  áskriftum  viðskiptavaka  og fastráðinna
starfsmanna N1 eru ekki skertar.

Áskriftir  í tilboðsbók B voru metnar á  grundvelli verðs og verða hlutir seldir
til  þeirra aðila  sem buðu  hæst. Alls  var 31 áskrift  samþykkt. Áskriftir sem
bárust á verði yfir útboðsgengi í tilboðsbók B eru ekki skertar en áskriftir sem
bárust á því gengi eru skertar hlutfallslega.

Seljendur í útboðinu eru FSÍ (Framtakssjóður Íslands) slhf. og Íslandsbanki hf.,
sem  hefur ákveðið að nýta heimild sína til  að stækka útboðið úr 25% hluta í N1
upp  í 28% en  aukningunni er  ráðstafað í  tilboðsbók B. Í október síðastliðnum
nýtti  hópur  fjárfesta  rétt  sinn  á  að  kaupa  18% hlut í félaginu af FSÍ og
Íslandsbanka.  Þessir tveir aðilar hafa því  að útboðinu loknu selt samtals 46%
hlutafjár í N1 á fjórða ársfjórðungi 2013.

Íslandsbanki  annast framkvæmd útboðsins og  mun senda fjárfestum tilkynningu um
úthlutun  í útboðinu  og greiðslufyrirmæli  þegar NASDAQ  OMX Iceland  hf. hefur
staðfest   að   hlutabréf   N1   verði   tekin   til   viðskipta  á  Aðalmarkaði
Kauphallarinnar.

Gert  er ráð fyrir  að gjalddagi og  eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði
17. desember  næstkomandi og greidd hlutabréf verði afhent 18. desember. Gert er
ráð  fyrir að 19. desember geti viðskipti hafist með hlutabréf N1 á Aðalmarkaði,
en  Kauphöllin  mun  tilkynna  um  fyrsta  viðskiptadag  með  minnst  eins  dags
fyrirvara.  Arion banki hefur umsjón  með því ferli að  fá hlutabréfin tekin til
viðskipta.

Listi  yfir  20 stærstu  hluthafa  N1  verður  birtur fyrir opnun markaða fyrsta
viðskiptadags félagsins.



Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1: "Það er stjórnendum og starfsfólki N1
mikið  ánægjuefni  hversu  vel  fjárfestar  hafa  tekið  félaginu í tengslum við
skráningu  þess í Kauphöll. Verður  hluthafahópur félagsins einn sá fjölmennasti
meðal  skráðra  félaga  og  eignarhald  þess  vel  dreift  á milli almennings og
fagfjárfesta. Fyrir hönd N1 býð ég nýja hluthafa velkomna og hlakka til eiga með
þeim farsælt samstarf."





Nánari upplýsingar veita:

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1 í síma 440 1000

Hafliði   Helgason,   Framtakssjóði   Íslands,   í  síma  864 6350, tölvupóstur:
haflidi@framtakssjodur.is

Dögg Hjaltalín, Íslandsbanka, í síma 440 3925, tölvupóstur:
dogg.hjaltalin@islandsbanki.is 

[HUG#1749192]