2013-03-04 10:51:54 CET

2013-03-04 10:52:56 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 09 1 og RVK 19 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2013 að efna til
útboðs í flokki RVK 09 1 og RVK 19 1 miðvikudaginn 6.mars. Reykjavíkurborg
stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð
útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð RVK 09 1 fyrir þetta útboð nemur alls 16.090 m.kr. að nafnvirði.
Skuldabréfaflokkurinn hefur ekki verið stækkaður á árinu 2013.

Heildarstærð RVK 19 1 fyrir þetta útboð nemur alls 1.535 m.kr. að nafnvirði.
Skuldabréfaflokkurinn hefur verið stækkaður um 340 mkr það sem af er árinu 2013.

Heimild til lántöku á árinu 2013 er 3.299 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 11.mars 2013.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Íslandsbanka, MP Banka og
Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. 


Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjölum:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321