|
|||
2013-12-17 17:11:21 CET 2013-12-17 17:12:22 CET REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - Company Announcement (is)HB Grandi seldi í dag frystitogarann Venus HF 519HB Grandi hf. seldi í dag frystitogarann Venus HF 519. Kaupandinn er grænlenska félagið Northern Seafood ApS. Söluverðið er 320 milljónir króna og mun greiðast á næstu árum. Markaðsdeild HB Granda hf. mun annast sölu afurða a.m.k. þar til kaupverðið er greitt að fullu. Venus var smíðaður á Spáni árið 1973 fyrir Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Venus var í fyrstu gerður út sem ísfisktogari og bar heitið Júní en nýir eigendur hyggjast nefna skipið því nafni aftur. Forsvarsmaður hinna nýju eiganda er Benedikt Sverrisson, sími 773 4250 |
|||
|