2008-10-09 08:30:00 CEST

2008-10-09 08:31:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Kaupþing leitar til Fjármálaeftirlitsins



Yfirlýsing frá Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings:"Þegar stjórn Kaupþings banka hf. fór yfir stöðu bankans á vinnufundi
dagana 25.-26. september gekk rekstur bankans vel og ljóst þótti að
afkoma þriðja ársfjórðungs yrði góð. Að meðaltali höfðu innlán aukist
um tæpa fjóra milljarða króna hvern dag undanfarna sex mánuði.
Lausafjárstaða bankans var því góð og áform uppi um að hefja uppkaup
á skuldabréfum útgefnum af bankanum. Lausafjárstaða Kaupthing Singer& Friedlander, dótturfélags bankans í Bretlandi, var einnig góð -
líkast til best meðal allra banka í Bretlandi.

Kaupþing hafði um langt skeið búið sig undir niðursveiflu á
verðbréfamörkuðum og þá einkum og sér í lagi á Íslandi enda hafði það
blasað við í allnokkur ár að gengi krónunnar var alltof hátt skráð.
Til að mæta hugsanlegri niðursveiflu hafði Kaupþing varið eigið fé
sitt með því að færa það í erlenda mynt, dregið úr vexti lána til
fyrirtækja á Íslandi og gefið eftir markaðshlutdeild á því sviði.
Kaupþing hafði ekki markaðssett lán í erlendri mynt. Þá hafði bankinn
aukið verðtryggðar eignir í eignasafni sínu á Íslandi og stóraukið
hlut innlána í fjármögnun sinni.

Um svipað leyti voru óveðurský tekin að hrannast upp á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum og traust þvarr hratt á milli fjármálastofnana.
Bankar urðu tregari til að lána hver öðrum og kölluðu inn lán. Að
morgni 29. september bárust fréttir af erfiðleikum Glitnis og
yfirvöld tilkynntu áform um kaup á 75% hlut í bankanum. Hófst þá
atburðarás sem enginn sá fyrir eða gat haft stjórn á. Þetta smitaði
út frá sér í íslenska hagkerfinu og krónan hóf frjálst fall.
Lánshæfismatsfyrirtæki lækkuðu lánshæfismat ríkisins og íslensku
bankanna og erlendir fjárfestar hrundu af stað skriðu þar sem þeir
reyndu að losa sig við íslenskar eignir óháð því hversu traustar þær
voru.

Eftir að breskir innstæðueigendur drógu innstæður sínar úr Icesave,
innlánareikningi Landsbankans í Bretlandi tók Fjármálaeftirlitið yfir
stjórnun Landsbankans. Í kjölfar þeirra frétta jókst verulega útflæði
innlána hjá Kaupthing Edge í Bretlandi, þrátt fyrir að sá
grundvallarmunur væri á Kaupthing Edge og Icesave að Kaupthing Edge
var tryggt af breska innstæðutryggingasjóðnum en Icesave af þeim
íslenska.

Eftir að breski fjármálaráðherrann lýsti því yfir að Íslendingar
hygðust ekki standa við skuldbindingar sínar gagnvart breskum
innstæðueigendum, tók breska fjármálaeftirlitið Kaupthing Edge af
dótturfyrirtæki bankans Kaupthing Singer & Friedlander. Í kjölfar
þess var Kaupthing Singer & Friedlander sett í greiðslustöðvun og
vísuðu lánadrottnar Kaupþings banka hf. þá til þess að
greiðslustöðvun dótturfyrirtækis væri vanefnd samkvæmt ákvæðum
lánasamninga móðurfélagsins og því ígildi greiðslufalls. Skipti þá
engu að lausafé móðurfélagsins væri nægjanlegt og staða þess góð."

Kaupþing banki hefur nú farið þess á leit við Fjármálaeftirlitið að
það, í samræmi við heimildir í nýjum lögum nr. 125/2008 sem sett voru
vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði, taki yfir vald
hluthafafundar Kaupþings banka hf. Jafnframt hefur stjórn bankans í
heild sinni sagt af sér.

Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem fer nú með allar
heimildir stjórnar. Markmið þessara aðgerða er að tryggja
fullnægjandi innanlandsstarfsemi bankans og stöðugleika íslensks
fjármálakerfis. Útibú bankans hér á landi verða opin eftir sem áður
og stefnt er að því að viðskiptavinir bankans finni eins lítið fyrir
breytingum og kostur er.

Á meðan skilanefnd fer með málefni bankans er ekki unnt að krefjast
aðfarargerðar, kyrrsetningar eða gjaldþrotaskipta gagnvart bankanum.
Innköllun til lánardrottna bankans verður ekki gefin út.

Frekari upplýsingar veitir:
Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Kaupþings í síma
444 6112 eða ir@kaupthing.com