2015-02-25 19:21:41 CET

2015-02-25 19:22:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landfestar ehf. - Ársreikningur

Landfestar ehf. : Ársreikningur Landfesta ehf. 2014


-      Rekstrartekjur ársins 2014 námu 2.191 m.kr. (2013: 2.137 m.kr.).

-      Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir 2014 nam 1.686 m.kr.
(2013: 1.587 m.kr.).

-      Heildartap ársins 2014 nam 42 m.kr. (2013: Hagnaður um 1.177 m.kr.).

-      Handbært fé frá rekstri nam 724 m.kr. á árinu 2014. (2013: 904 m.kr.).

-      Bókfært virði fjárfestingareigna nam 22.740 m.kr. í árslok 2014. (2013:
23.131 m.kr.).

-      Matsbreyting var neikvæð á árinu 2014, nam 582 m.kr. (2013: Jákvæð um
1.095 m.kr.).

-      Vaxtaberandi skuldir námu 15.336 m.kr. í árslok 2014. (2013: 15.177
m.kr.).

-      Eiginfjárhlutfall nam 29,2%. (2013: 34,7%).

-      Tap á hlut var 0,02. (2013: Hagnaður á hlut 0,59).

Ársreikningur Landfesta ehf. var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 25.
febrúar 2015. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og
dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa
endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Rekstur og efnahagur félagsins

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.191 m.kr. á árinu 2014 samanborið við 2.137
m.kr. árið 2013. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir matsbreytingu og afskriftir
nam 1.686 m.kr. árið 2014 samanborið við 1.587 m.kr. árið áður. Samkvæmt
rekstrarreikningi samstæðunnar nam heildartap ársins 2014 42 m.kr.
Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er við núvirt framtíðarsjóðsteymi
einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu
fjárfestingareigna. Tap á hlut nam 0,02 á árinu samanborið við hagnað á hlut sem
nam 0,59 árið áður. Handbært fé frá rekstri nam 724 m.kr. samkvæmt sjóðstreymi
samstæðunnar. Heildareignir samstæðunnar námu 23.412 m.kr. í árslok 2014
samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nema fjárfestingareignir 22.740 m.kr.
Eigið fé samstæðunnar í árslok 2014 var 6.828 m.kr., þar af hlutafé 1.660 m.kr.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 29,2% í lok árs.

Í upphafi árs nam hlutafé félagsins 1.988 m.kr. en í maí 2014 var nafnverð
hlutafjár lækkað um 328 m.kr. að nafnvirði á genginu 3,05 eða samtals 1.000
m.kr. Í upphafi árs var allt hlutafé félagsins í eigu Arion banka hf. en í lok
árs var allt hlutafé í eigu Eikar fasteignafélags hf. Í júlí 2014 keypti Eik
allt hlutafé félagsins af Arion banka í samræmi við kaupsamning undirritaðan í
desember 2013. Kaupsamningurinn var með fyrirvara um samþykki
Samkeppniseftirlitsins sem barst í lok júní 2014. Stjórn félagsins leggur til að
ekki verði greiddur út arður á árinu 2015.

Landfestar ehf. er eitt af sjö dótturfélögum í samstæðu Eikar fasteignafélags
hf. Fasteignir félagsins eru um 36 talsins, telja um 98 þús. útleigufermetra,
yfir 160 leigueiningar og fjöldi leigutaka er um 122. Helstu eignir félagsins
eru Borgartún 21, 21a og 26 og Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær). Hægt er að nálgast
ársreikning félagsins á www.landfestar.is.

Landfestar ehf. gaf út skuldabréfaflokkinn LF 14 1 í júní 2014. Í desember 2014
var skuldabréfaflokkurinn skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Staðfesting
endurskoðanda á útreikningum útgefanda LF 14 1 á skilmálum skuldabréfaflokksins
eru meðfylgjandi tilkynningu þessari. Samkvæmt staðfestingu endurskoðanda
stóðust allir skilmálar skuldabréfaflokksins LF 14 1 miðað við dagsetninguna
31.12.2014,

Fjárhagsdagatal 2015

Hálfs árs uppgjör Landfesta ehf. 2015 verður birt í viku 36, 2015.



Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf., í síma 590-2200
eða gardar@eik.is.

Kolbeinn  Friðriksson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf.,
í síma 590-2200 eða kolbeinn@eik.is.


[HUG#1897402]