2013-10-15 18:32:03 CEST

2013-10-15 18:32:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Nýr flokkur sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hefur gefið út nýjan flokk sértryggðra skuldabréfa. Um er að ræða
óverðtryggða útgáfu, 3 ára flokk, ISLA CB 16 að upphæð ISK 1.700.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 6,35%. Bréfin bera 6,2523% vexti greidda tvisvar á ári.

Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að
upphæð ISK 22.340.00.000 frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember
2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.

Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann
22.október næstkomandi.  Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa
Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
440 3187 / 844 3187.

Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma
440 3925. 

[HUG#1735846]